Kyrrð Matcha
Matcha - ceremonial grade
Matcha - ceremonial grade
Couldn't load pickup availability
Lýsing
Kyrrð Matcha er hágæða ceremonial grade matcha frá Uji í Kyoto, Japan. Svæði sem þekkt er fyrir dýpstu hefðir matcha-ræktunar í heiminum.
Framleitt úr fyrstu uppskeru (first harvest) Tencha-laufsins, sem er handtínt, skyggt frá sól í 3–4 vikur fyrir uppskeru og steinmalað í fínt duft til að varðveita bragð, lit og næringu.
Drykkurinn er silkimjúkur, lifandi grænn og örlítið sætur, með mildum blómakeim og dýpri umami-nótum.
Kyrrð matcha fangar jafnvægið milli styrks og ró – fullkomið fyrir bæði hreint matcha-te og latte.
Undirbúningur
1. Sigtaðu 2g af matcha í matcha skál til að forðast kekki.
2. Bættu við 60–70 ml af heitu vatni (70–75°C, ekki sjóðandi).
3. Þeyttu með bambuspísknum (chasen) í W-hreyfingu þar til mjúk, fín froða myndast.
4. Fyrir matcha latte: helltu þeytta matcha-duftinu út í 150 ml af volgri eða kaldri mjólk.
Fyrir hreint matcha te: bættu við 40–80 ml af heitu vatni og njóttu.
Geymsla
Geymist á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi og raka til að varðveita lit og bragð.
Best geymt í ísskáp eftir opnun.
Share
