Um okkur
Kyrrð Matcha varð til úr einfaldri hugsun – að hægja á, njóta og finna ró í dagsins amstri.
Við veljum aðeins ceremonial-grade matcha frá Kyoto í Japan – malað á hefðbundinn stein, fullt af náttúrulegri orku, einbeitingu og ró. Vörurnar okkar endurspegla sömu hugmynd – að skapa rútínu sem nærir hug og líkama í einfaldleika og gæðum.
Kyrrð Matcha er íslenskt merki með japanskan uppruna. Við trúum að raunverulegur lúxus sé kyrrðin sem þú finnur – ekki hraðinn sem þú eltir.
Kyrrð Matcha er stofnað af okkur, Hlín og Hlyni.
Hlín starfar í heilbrigðisgeiranum og hefur lengi haft áhuga á heilsu, vellíðan og jafnvægi í daglegu lífi.
Hlynur er einkaþjálfari með mikla ástríðu fyrir hreyfingu, líkamlegri og andlegri heilsu.
Markmið okkar er að skapa augnablik af kyrrð.